17nóvember

Í alvöru =)

Í alvöru .....þá ætla ég að skrifa nokkrar línur....ég var búin að gefa það út að ég væri hætt að blogga...en fékk svo allt í einu þörfina að skrifa eitthvað.

Það er búið að vera nóg að gerast hjá mér og mínum undanfarið.
Eins og flestir vita fór ég að vinna hjá Kirkjubraut 11 í sumar, sem heitir núna Gamla Kaupfélagið. Enda hélt ég líka að ég væri að verða atvinnulaus 1 nóv. En svo kom á daginn að ég svo skemmtileg að þeir vildu ekki sleppa mér. Svo í dag er ég í 2 vinnum, í skóla og húsmóðir....þannig að dagskráin mín er fullsetin. Þann 20 okt fékk ég það tilboð frá Gamla Kaupfélaginu að gerast vaktstjóri þannig að ég vinn ógó mikið núna. Ég hef aldrei nokkurn tíma verið slugsi í skólanum, en því miður núna verð ég að viðurkenna að ég hef ekki verið nógu dugleg.

Svo er það annað, vegna mikilla anna og plús mikla veikinda heima hjá mér hef ég látið vini mína liggja á hakanum og vil ég biðjast afsökunar á því ...ein með smá mórall....hehehe
En að öðru jóla jóla jóla barnið er að vakna í mér...ég er nýbyrjuð að baka fyrir jólin...já já ég veit ég hef alltaf byrjað miklu fyrr...en vá ég hef aldrei haft svona mikið að gera áður, tíminn bara flýgur.
En stefnan er að skreyta næstkomandi helgi og baka eins og crazy person...Jólagjafirnar eru næstum allar klárar...

Ég er svo rosalega sátt við allt núna....vinnurnar mínar og allt annað.
Að vinna í Pípó ...gefur mér mikið og að vinna hjá Kaupfélaginu er geggjað, ég hef kynnst fullt af fólki og það er svo gaman.

Af börnunum er allt fínt að frétta....Sunneva er algjör dekurrófa...enda er hún búin að vera dugleg að næla sér í pestir og það að vera veik heima þá eru allir að gera allt fyrir hana...svo þegar hún hressist verður hún fúl að fá ekki allt eins og þegar hún var veik. Eins og sagði dekurrrófa....hehehe

Strákarnir voru allir í boltanum, nema Gunnar ákvað að taka sér smá pásu...áhuginn bara hvarf af því að æfa. Þannig nú sit ég og vona að hann skiptir um skoðun.

Af Frey kallinum ....já það vantar hann alveg á facebook...en hann neitar að koma þangað inn fyrr en það hafa skráð sig 500 manns á síðuna "Freysa á facebook" ...svo ég hvet alla að bjóða öllum sem þeir þekkja hehehe...
Hann er í skóla líka og það gengur vel...enda er hann mikið heima þegar ég er að vinna ...Kiss

Við erum svo komin með nýtt gæludýr....nei það er ekki kisa né hundur....heldur fengum við okkur litin sætan naggrís.  Hann er algjört krútt og fékk nafnið Coco...

Annars er ekki neitt meira í fréttum....og held þetta sé orðin fín ritgerð hjá mér....nú er að sjá hvort að það komi einhver komment...nú ef þau koma ekki...jaaa þá held ég að bloggið mitt sé dautt....

seeeeeeeeyaaaaaaaaaa Dísa
17. nóvember 2009 klukkan 08:27
Dísa
7 athugasemdir
15maí

Nýjasta nýtt

Já svona er þetta....maður gleymir alveg því að blogga...svona þegar maður er orðin svona húkkt á Fésinu.

Það liggur við að maður hættir þessu, en ég hef fengið nokkrar kvartanir svo ég ætla sýna smá lit og setja hérna inn smá pistill.

Fermingin hans Juliosar er búin og hjá honum litla brósa svo þeir eru báðir orðnir unglingar. Allt gekk eins og í sögu og allir mjög ánægðir og sérstaklega fermingarbarnið sem skiptir mestu máli. Hann fékk fartölvu frá okkur og systkynum mínum, foreldrum mínum og tengdaforeldrum. Eftir það hefur maður varla fundið fyrir því að drengurinn sé heima.....svo fékk hann að kaupa sér svefnsófa fyrir hluta af fermingarpeningnum. Hann var mjög ánægður með hann.

Annað: já hún Sunneva er búin að vera dugleg að ná sér í allar pestir sem ganga hérna í bænum. En er hress núna og vonandi verður hún það áfram. Gunnar Bjarki lenti inn á barnaspítalnum þann 30 apríl, fékk svo skæða barkabólgu þessi elska. Hann var inni eina nótt.  En hann var duglegur að hrista þetta af sér., enda hraustur strákur.  Nóg tal um pestir.

Ég fór á lokahófa-djamm síðustu helgi með magadans hópunum. Það var æðislega gaman. Það er víst í fyrsta skipti sem magadans var dansaður á mörkinni. Sem er bara geggjað hahaha Laughing

En annað kvöld verðum við hjónin barnlaus, en samt heima...OMÆ það hefur ekki gerst í mjög langan tíma. svo við ákáðum að halda partý og skella okkur svo kannski á ball á eftir. Auðvitða vill svo skemmtilega til að það er Eurovision, svo þatt verður svona Eurovision partý hjá okkur ......hlakka ógó mikið til Wink

Vona bara að það komi einhverjir til okkar til að djamma.....við hjónin höfum ekki haldið (barnlaus) partý síðan 1998 eða 1999....sko heima hjá okkur....

Það er alveg ótrúlegt hvað ég hef mikið að gera þessa dagana og ekki í skóla.....en mig er farið að klæja í puttana að byrja í skólanum aftur. Ég fékk nýja fartölvu á sama tíma og fermingarbarnið....svo ég hef sko enga afsökuna að fara ekki í skóla í haust...

En jæja ég man ekki eftir neinu meiru í augnarblikinu...og ætla að láta þetta duga í bili.....þar til einhvern tíma næst  hafið það sem allra allra best....over and out..

15. maí 2009 klukkan 10:00
Dísa
3 athugasemdir
31mars

Fermingarstússið og mín Frábæra systir :-)

Jamm og jæja... hvernig væri að smella hérna inn smá pistli.

Af okkur er allt gott að frétta, það er nóg að gerast fermingaundirbúningurinn er nokkurn vegin klár og mamman telur niður hlakkar til þegar þetta er búið. Innocent
Fermingadrengurinn er alveg að springa úr spennu, sem er bara gaman. Því miður gerði mamman eitt klúður þegar hún gerði boðskortin, hún skrifaði að athöfnin í kirkjunni byrjaði 11, sem er vitlaust...hún byrjar 10:30...en sem betur fer mæta bara ömmurnar og afarnir í kirkjuna. Það festist í mér að þetta byrjaði 11, því þegar foreldrarnir fermdust sjálf þá byrjaði athöfnin 11....en það eru hummm mörg ár síðan..hehe. Það ansi margt sem maður er búin að læra af þessum undirbúningi og sumt sem maður mun gera öðruvísi næst...eftir 4 ár...
Ég er búin að panta salin fyrir Egil, ó já maður er ekki búin með fyrstu ferminguna og er þegar farin að hugsa um þá næstu...skrítið Wink
Hún elsku besta systa mín ætlar að koma á laugardaginn og hjálpa mér að skreyta salin og hjálpa mér....get varla beðið þar til húun kemur ..Kiss
Svo hef ég verið að vandræðast með kjól á skvísuna mína litlu og viti menn það er bjargað, elsku tengdamamma mín prjónaði eitt stykki kjól á skvísuna...svo daman verður flott. Laughing
Ég veit ekki hvað meir ég get skrifað um hérna...en ég lofa að koma með uppdate eftir fermingu svo þið kæru ættingar fjær getið fylgst með okkur stórfjölskyldunni....

Þar til næst ...túrílú
31. mars 2009 klukkan 09:11
Dísa
1 athugasemd
06febrúar

Pirringur DAUÐANS!!!!!!!

Jæja er ekki komin tími til að ausa aðeins úr sér.
Það er nú kannski ekki mikið sem er búið að ske frá áramótum, tíbíska heimilislífið og Sunneva dugleg að ná sér í flensur....en í janúar varð hún svakalega veik í heila í viku. En sem betur fer náði hún þessu úr sér og hress núna. Þori ekki að segja meira um það, hrædd um að það breytist þá. 

Ég fór í mitt fyrsta staffa-partý í janúar hjá Pípó,,,já já ég er búin að vinna hjá pípó síðan Maí 2005, var sko tími til að skella sér á djamm með strákunum....hehe. Það var æðislega gaman. Bara svona koma því að hreint, þá var mökum ekki boðið og ég er eini kvenmaðurinn á vinnustaðnum, vinn með 5 karlmönnum. Lucky me Laughing

Gunnar Bjarki minn varð 7 ára í janúar, litli strákurinn minn...díses getur einhver sett tíman í slow motion....þetta líður svo hrikalega hratt.
Svo hef ég verið á fullu að undirbúa ferminguna, búin að gera boðskortin á bara eftir að prenta þau út, en svo dó mín elskulega fartalva...en sem betur fer náði ég að færa kortin yfir í hina tölvuna rétt áður. HJÚKK Surprised
Nú vantar mig nýja tölvu....ohhh er svo pirruð að þurfa panta tíma til að fara í stóru tölvuna ...Freyr er í skóla svo hann er ansi oft í henni og auðvitað er unglingurinn alltaf að kíkja á fótbolta síðurnar sínar....urrrr pirrrr Sealed
En þetta verður víst að ganga þar til maður hefur efni á að kaupa sér nýja....það víst kreppa....en enginn krepputilboð Cry.
Já það er eitt sem ég verð að segja hérna, ég ákvað að kanna hvort ég gæti pantað sama salinn og ég fékk fyrir ferminguna hans Julio fyrir Egil...og viti menn ég pantaði hann fyrir 2013 og er númer 2 í röðinni...svo þið sem eigið börn 10 ára og eldri ...ættuð að fara huga að þessu. Kiss

En núna kemur pirringurinn.......hvað er með þessa eldri krakka hér í bæ??? Nú það er búið að sprengja upp alla fréttablaðs kassa í nágrenninum mínu, og það sást til stráka sem voru á bíl henda einhverju í einn kassan og keyra í burtu og svo sprakk kassinn í tætlur og brotinn voru útum allan garðinn minn og úti á götu. Það er greinilegt að þetta eru ekki drengir sem eru í grunnskóla....því þeir eru ekki komnir með bílpróf....ég verð svo reið...þessir krakkar bera enga virðingu fyrir umhverfinu sínu....hvað er að????

Læt þetta væl í mér duga núna....þar til næst (sem getur verið í næsta mán) kveðja Dízan
06. febrúar 2009 klukkan 10:36
Dísa
1 athugasemd
09janúar

Nýtt ár og nýjir tímar

Gleðilegt ár allihopa.

Jólin hjá okkur familíjunni voru æðisleg. Það er greinilegt að kreppan hefur áhrif á jólagjafir. Því við hjónin fengum tvær brauðvélar...haha... en það var nú lagi, við skiptum annari vélinni og fengum okkur pizzaofn sem er alveg frábær. Ég hef verið að baka næstum daglega í brauðvélinni er að reyna finna góðar brauðuppskriftir. Upphaldsuppskriftin er fundin, það er kryddbrauð...ég hef þurft að baka það daglega síðan skólinn byrjaði, því strákarnir vilja taka það með sér í nesti í skólan. Elsku Freyr minn varð slappur á jóladag... en það var bara legið í leti.
Börnin okkar voru ánægð með allt sem þau fengu í jólagjöf og það heyrðist vel á jóladag að það fylgja batterí með öllu dóti í dag...húsið ómaði.Undecided  Áramótin voru fín....elsku litla dúllan náði ekki að halda sér vakandi, en hún sofnaði um tíu og svaf yfir áramótin. En strákarnir voru svo spenntir...við fórum út klukkan hálf tólf eftir skaupið og það var sprengt upp til klukkan hálf tvö....Gunnar Bjarki var orðin þreyttur um eitt og bað um að fá að fara inn að sofa. Egill fylgi svo eftir rétt fyrir tvö. svo kíktu til okkar Tóti og Bogga með ungana sína. Stuttu eftir að þau fóru komu Elva, Trausti og svo kom Ole óvænt....það var setið og spjallað til klukkan hálf fimm.....rosa næs.
Ég strengdi áramótaheit þetta árið sem ég ætla að vera dugleg að standa við. Ég hef verið frekar léleg í því að fara í heimsóknir og mín heit voru þau að ég ætla bæta úr því.
Annars er þetta búið að vera mjög góður tími og allir sáttir og ánægðir.
Ég ætla láta þetta duga af fréttum  núna.... en vertu viðbúin að fá mig í kaffi hí hí Smile

09. janúar 2009 klukkan 10:11
Dísa
1 athugasemd
29desember

Gleðilegt nýtt ár

Gleðilegt nýtt ár elsku vinir og takk fyrir það gamla ....
29. desember 2008 klukkan 09:25
Dísa
Engin athugasemd
23desember

Gleðileg Jól

Elsku vinir og vandamenn

Við fjölskyldan óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á næsta ári.

 Þökkum fyrir allar þær frábærar stundir við áttum á þessu ári.

Smá fréttir:

Allir eru orðnir hressir hér og jebb ég náði báðum prófunum og er mjög sátt.

Eigið yndisleg jól........jólakveðjur

23. desember 2008 klukkan 08:40
Dísa
1 athugasemd
14desember

Próf.....veikindi og aftur próf....

Það er sko búið að vera nóg að gera hérna á heimilinu síðustu vikurnar.

Ég byrja bara á segja frá því að daman litla er búin að vera dugleg að ná sér í pestir, hún veiktist fyrst helgina þegar fyrsti í aðventu var.Sem betur fer var jólahlaðborðinu sem við hjónin ætluðum að fara á frestað. Svo leið vikan þannig að við hjónin skiptumst á að vera heima með hana. Sem betur fer var hún orðin hressari fyrstu helgina í des, þá fóru krakkarnir út í voga til afa og ömmu og við hjónin á jólahlaðborð með Pípó á fjörukránni. Það var æðislega gaman.


Fyrir og eftir þetta fór ég að læra á hverju kvöldi fyrir Íslenskuna með Helgu minni og við fórum í það próf þann 10 des.


Svo byrjaði gamanið aftur Sunneva náði sér í ælupestina daginn eftir það og byrjaði gamanið um nóttina...við Freyr færðum einn sófan inn í herbergið hjá henni svo ÉG gæti verið inni hjá henni um nóttina....þetta var alveg hræðileg nótt, við mæðgur sváfum ekkert. En náðum þó svefninum upp um morgunin. Næstu nótt tók Freyr að sér að vera hjá henni og já þá sá þessi elska á mér að það væri greinilega ekki hægt að sofa á sófanum sem við færðum þangað inn kvöldið áður svo HANN ákvað að færa Lazy-boy sófan í staðinn inn hjá henni....og svaf þar. Míns varð pínu fúl....að honum hafði ekki dottið þetta í hug þegar ég átti vera hjá henni...en jæja....man það næst. Ég naut þess allavega að sofa ALEIN í stóra rúminu okkar.


En elsku litla prinsessan okkar er loksins búin að jafna sig, og þá auðvitað byrjaði næsta barn að gubba. En hann Egill minn veiktist  á laugardagsmorgunin. En hann var fljótur að jafna sig,,,,var byrjaður strax í dag að spyrja hvort hann mætti ekki fara út að leika, þessi elska. Freyr fór síðan í jólaboð í gær hjá Rafþjónustinni, en ég kíkti í smá tíma, var bara með samviskubit að fara frá veiku börnunum mínum.


Svo er dagurinn í dag búinn að vera fínn, ég er búinn að liggja yfir lærdómi...eins mikið og ég hef getað. Freyr fór með verðandi fermingarbarnið í fjölskyldumessu.


Á morgun er síðasta prófið mitt og svo er ég komin í frí frá skólanum ....get varla beðið.


Jæja læt þetta duga í bili...hendi hérna jólabloggi fljótlega ...

kannski fyrir jólInnocent

14. desember 2008 klukkan 22:23
Dísa
2 athugasemdir
30nóvember

Próf!!!

Núna er komið að því að huga að lestri fyrir próf. Ég er næstum búin að gera allt sem ég ætlaði mér fyrir jólin.
humm.....
  • Allsherjar jólaþrif...Búið
  • Smákökubakstur....Búið
  • Jólainnkaup....jaaa næstum búið
  • Skrifa Jólakortin.....Búið
  • Jólaskreyta húsið .....Búið
Sko næstum allt klárt....nema að pakka hluta af jólagjöfunum inn.
Við vorum með okkar árlega kaffiboð í dag og núna í kvöld fann ég hvað ég róaðist niður í jólastressinu og í staðinn kom prófkvíðin inn hahaha Sealed
En það styttist óðum í jólin og eitt sem maður á auðvitað eftir að versla í matin. En jeremías hvað allt hefur hækkað geðveikt. Mills kavíar sem já frekar vinsæll á mínu heimili fór úr 259 krónum upp í 515 krónur...er þetta eðlilegt? ...ég bara spyr.Undecided En það þýðir ekkert að svekkja sig, nú verður maður bara að taka sig á og verða súper dúper hagsýn og passa sig að fylgjast vel með öllu sem maður er að borga fyrir.....

En jæja elskurnar ætla ekki að hafa þetta lengra í þetta sinn,  ætla njóta þess að slappa af áður en lærdómstörnin tekur völdin......hafið það sem allra best.....
30. nóvember 2008 klukkan 22:36
Dísa
2 athugasemdir
03nóvember

Jóla-Innkaup

Jæja hvernig væri að henda inn hérna einni færslu???Surprised

Héðan er allt gott að frétta, Sunneva öll að koma til. Litla daman er búin að vera veik síðan á fimmtudaginn. Svo er your's truly búin að liggja í leti, hef hvorki nennt að baka eða læra.Frown

En ég skellti mér suður í gær að byrja á þessum jólagjafa innkaupum. Það gekk bara ansi vel, enda er mann orðin duglegur að leita að tilboðum hahaInnocent....Egill vildi vera mömmu-strákur í gær og fékk að koma með. Við byrjuð á að fara í krepputorg, ég verð nú að segja að mér finnst það nú ekki spennandi. Miðað við veðurfar hér á landi á veturnar, þá er ansi langt og kalt að labba á milli búða, sérstaklega ef maður fer í RL búðina og svo ætlar í Toy'R'us.Yell Maður fer frekar í bílinn og keyrir að næstu búð. Eftir heimsóknina í krepputorg fórum við að ná í hana Gullu systu og skelltum okkur í Kringluna. Þar fengum við okkur smá í gogginn áður en haldið var áfram. Ég náði að versla flest allar jólagjafir í Hagkaupum. Við hjónin vorum búin að ákveða að kaupa handa prinsessunni okkar spark-bíl. Bara langar að benda á það að í Toy'R'us kostar spark-bíll á bilinum 10 þús og upp úr. En þessi fíni sparkbíll sem ég fann í hagkaupum var á 4600.- þvílíkur verðmunur.

Ég ætla nú ekki að gefa upp meira hér hvað ég keypti. En við systurnar og Egill vorum dugleg að skoða í allskonar búðum. Eins þeir vita sem þekkja mig þá get ég verið hummmInnocentUndecided ...furðuleg þegar ég er að skoða.  Við fórum í eina búð sem heitir Accessories.....og þar sá ég hring sem mér fannst svona jaa,,, allt í lagi, og hann rann mjög vel upp á fingurinn, en viti menn ég ætlaði aldrei að ná honum af, Gullu systu fannst þetta mjög fyndið. Hún bjóst við því að ég myndi þurfa að kaupa hann, því hann var fastur á mér. En ég náði honum af á endanum, en greyið puttinn minn er marin eftir átökin ...hahahaSmile

Þetta atvik minnti mig á aðra sögu um þegar ég fór í verslunarleiðangur með Helgu minni fyrir einhverju síðan í Ikea. Þar vorum við að skoða íbúðirnar sem þeir setja upp. Mér fannst eldhús-innréttingarnar æðislegar, sérstaklega stoppararnir á skápunum og skúffunum. Sama hversu harkalega þeim var lokað, þá hægði stopparinn alltaf á, og skúffan eða hurðin lokaðist varlega. Nú svo fórum við að skoða svefnherbergis skápinn, þá hringdi síminn hjá Helgu. Ég hélt áfram að skoða og hugsaði mér  ''ætli það sé stopparar á svefnherbergisskápnum líka?''  og með því sama tók ég í hurðina og skellti henni með hörku....og það heyrðist BOMMMMM....neibb það var enginn stoppari þarna.Sealed Helga mín hrökk í kút og horfði svo á mig og skellihló. Bara svo þið vitið, þá fæ ég ekki að gleyma þessu.Laughing

En jæja, ég hef nú ekki meira í fréttum, ætla að fara koma mér í það að læra. Það eru bara 2 vikur eftir af skólanum. Svo eru prófin 10 og 15 des. Hlakka svo til þegar þessi önn er búinn. Ég ætla nefnilega að taka mér frí eftir áramót og njóta þess að skipuleggja ferminguna og dúllast.Laughing

Þar til næst .....hafið það sem allra best.

03. nóvember 2008 klukkan 16:09
Dísa
2 athugasemdir

Aðalvalmynd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan

Innskráningar kubbur

Prófíll

  • Nafn: Dísa
  • Atvinna: Bókari
  • Hjúskaparstaða: Gift

Afþreyingarsíðurnar mínar